Færsluflokkur: Bloggar
25.1.2012 | 19:49
Ogilvy um prentauglýsingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2012 | 06:59
Fjögur heilræði við gerð birtingaáætlana
- Samfelldar birtingar: Þá er engin vika ársins án áreitis. Stefnan virkar vel fyrir flestar vörur, sérstaklega þær sem hafa litlar árstíðarsveiflur og stöðug neysla er á. Er hér átt við vörur á borð við matvörur, eldsneyti og þvottaefni.
- Birtingar í bylgjum: Þá er á ákveðnum tímabilum ársins birt mikið en lítið eða ekkert á öðrum. Skíðavörur eru til að mynda oft auglýstar á þennan hátt.
- Birtingar í samfelldum bylgjum: Þá er stöðugt áreiti allar vikur ársins en aukið áreiti á ákveðnum tímabilum. ,,Léttbjór« er dæmigerð vara sem auglýst er á þennan máta. Stöðugar áminningar eru yfir allt árið en birtingamagn eykst mikið fyrir hátíðisdaga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2011 | 01:24
Afvopnastu. Um jólin er allt hægt !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2011 | 09:00
Ísland allt árið - Bjóðum heim!
Bloggar | Breytt 1.12.2011 kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2011 | 07:49
Kex hostel - Markaðsstarf sem byggir á upplifun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2011 | 08:21
Markaðsstarf í kreppu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2011 | 10:19
Íslensk fyrirtæki, viðskiptatryggð og NPS
- Meðmælendur eru líklegri til að vera lengur í viðskiptum við fyrirtæki á meðan lastarar endast stutt og hverfa fljótt.
- Meðmælendur eru ekki eins viðkvæmir fyrir verði, því þeim finnst þeir fá gott virði af viðskiptunum. Lastarar upplifa lítið virði og eru mun viðkvæmari fyrir verðhækkunum.
- Meðmælendur versla meira hjá fyrirtækinu og ráðstafa hjá því stærri hluta af því fjármagni sem þeir setja í vöruflokkinn. Þeir eru einnig líklegri til að versla fleiri vörutegundir af fyrirtækinu og velja oftar dýrari vörur. Fari fyrirtækið í vöruútvíkkun eru meðmælendur ennfremur líklegri til að taka þeim vörum vel.
- Lastarar eru líklegri til að kvarta sem eykur kostnað en það er einnig kostnaðarsamara að ná þeim í viðskipti. Meðmælendur lækka kostnað fyrirtækja því þeir eru bæði tryggari ásamt því að hvetja aðra í kringum sig til að koma í viðskipti. Kostnaður við markaðs- og sölustarf lækkar einnig þar sem ekki þarf stöðugt að sannfæra eins marga nýja einstaklinga að koma í viðskipti. Rannsóknir Reichheld benda til þess að 80-90% af öllum jákvæðum meðmælum komi frá meðmælendunum. Þeir sem koma í viðskipti vegna meðmæla eru jafnframt líklegri til að verða meðmælendur sjálfir svo það verður til jákvæður spírall.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Nýta tækifærið í allri fjölmiðlaumfjölluninni til að koma þeim skilaboðum á framfæri að lífið væri að ganga sinn vanagang á Íslandi og að einmitt núna væri frábær tími til að heimsækja Ísland.
- Lágmarka neikvæðu áhrifin á ferðaþjónustuna.
- Koma í veg fyrir hrun í fjölda ferðamanna árið 2010 og reyna að halda ferðamannafjölda í sömu hæðum og árið á undan.
- Íslendingar voru hvattir til að senda kveðjur. Fyrirtæki hvöttu starfsmenn sína til að senda myndband um Ísland á alla erlenda vini og viðskiptafélaga á milli klukkan tvö og þrjú þann þriðja júní 2010. Þriðjungur af íslensku þjóðinni tók þátt og var myndbandið sent á tæplega tvær milljónir manna út um allan heim.
- Það var búin til heimasíðan Inspiredbyiceland.com en þar voru hýstar sögur frá fólki sem fjölluðu um kosti landsins sem áfangastaðar. Myndbönd frá stjörnum á borð við Viggo Mortensen, Yoko Ono og Eric Clapton voru á meðal þeirra.
- Haldnir voru stórir útitónleikar 1. júlí 2010 sem voru í beinni útsendingu á netinu. Yfir 80.000 manns horfðu á þá í beinni og margfalt fleiri á upptökur af þeim síðar.
- Farið var í mikið almannatengslaátak. Markmiðið með því var að dreifa jákvæðum fréttum af Íslandi í fjölmiðla um allan heim.
- Það voru birtar auglýsingar bæði á netinu og í hefðbundnum miðlum á öllum mörkuðum.
- Farið var á fjölmargar ferðaráðstefnur með skilaboð herferðarinnar þar sem rætt var við ferðaskrifstofur og ferðaheildsala.
- Samfélagsmiðlar voru mikið notaðir, til að mynda blogg, Facebook og Twitter þar sem myndböndum og sögum var dreift sem ýttu undir skilaboð herferðarinnar.
- Tæplega 300 blaðamönnum var boðið til Íslands.
- Sex myndavélar voru settar upp á vinsælum ferðamannastöðum víðsvegar um Ísland sem hægt var að horfa á í beinni útsendingu á netinu. Markmiðið með þeim var að segja fólki að ef þú trúir ekki að lífið gangi sinn vangagang á Íslandi, kíktu þá sjálf(ur). Útsendingarnar fengu yfir 60 milljón áhorf á meðan herferðin var í gangi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2011 | 09:13
Nova, Bónus og Blue Ocean Strategy
- Bónus hætti að auglýsa, hætti að verðmerkja hverja vörueiningu, bjóða dýrar sérvörur, bjóða vörur með lítinn veltuhraða, taka við kreditkortum og selja sígarettur sem var venja á markaðnum.
- Bónus minnkaði vöruúrval, kostnað við staðsetningu verslana, þjónustu, kostnað við stjórnun og yfirbyggingu, opnunartíma og samningsvald birgja.
- Það sem Bónus jók var tölvukerfi fyrir reksturinn, einfaldleika pakkninga, staðgreiðslu fyrir vörur frá birgjum og notkun á ódýrum markaðssamskiptum með því að nota almannatengsl.
- Bónus skapaði svo nýjungar sem ekki var venja fyrir á markaðnum: bauð ódýrar vörur í eigin nafni, var með frysti herbergi í verslunum, strikamerki og skapaði sterkt vörumerki með ímynd lágvöruverslunar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2011 | 08:41
Hvað getur Disney kennt íslensku markaðsfólki?
- Þjónustuþema - einfalt þema sem er leiðarljós í allri þjónustu og ákvarðanatöku. Hjá Disney er það ,,to create happiness for people of all ages everywhere.«
- Þjónustustaðall - allir þeir þættir sem skipta mestu máli í röð eftir mikilvægi. Hjá Disney er þjónustustaðallinn: öryggi, kurteisi, skemmtun (e. show), skilvirkni.
- Kerfi til að framkvæma - samsett úr þremur þáttum: starfsmenn, umhverfið og ferlar sem verða að skapa sömu upplifun og þjónustu og þemað setur fram.
- Samþætting - snýr að því að allir hlutar gæðaþjónustuhringsins vinni saman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 786
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar





